|
Bakað eggaldin með tómatlauksósu og bráðnum mozzarella
Svakalega góður ítalskur réttur, góður sem forréttur.
Bakað eggaldin með tómatlauksósu og bráðnum mozzarella.
Einn sá allra besti ítalski forréttur sem til er, allavega að okkar mati.
Baunapottréttur frá Mexíkó
Hollur baunapottréttur ættaður frá Mexíkó.
Grilluð paprika
Einfalt og gott. Hægt að nota sem hráefni í aðra rétti, meðlæti eða bara njóta hennar ofan á brauð.
Grænmeti í Tandoori Masala
Mjög bragðgóður grænmetisréttur "kryddaður" með hnetum
Grænmetis-eggjakaka
Hægt er að nota hvaða grænmeti sem er í eggjakökuna þetta er í raun uppskrift sem góð er að nota til að hreinsa ísskápinn.
Til að búa til enn matarmeiri og próteinríkari máltíð er sniðugt að bæta við baunum, t.d. nýrna- eða kjúklingabaunum.
Spari má líka bæta við fetaosti, hráskinku eða öðru góðu kjötáleggi eða setja nokkrar ostsneiðar ofan á kökuna á meðan hún er að bakast.
Grænmetislasagna
Einfaldur réttur og líka góður upphitaður. Fínn þegar hreinsa þarf til í ísskápnum því hér má nota hvaða grænmeti sem er og klára endana af ostinum.
Grænmetispottur
Léttur réttur fyrir tvo eða meðlæti fyrir fjóra.
Kartöflur með kryddskinni
Einfalt og gott meðlæti. Fyrir 4.
Kryddaðar gulrætur
Sætt og gott meðlæti. Fyrir 4-6.
Kryddaðir tómatar
Gómsætir heitir tómatar. Góðir sem meðlæti með kjöti, fiski, grænmetisréttum eða bara með volgu brauði sem forréttur. Fyrir 4.
Linsubaunasalat
Fljótlegt, hollt og einstaklega bragðgott. Passar með grænu salati, ofan á brauð og með flestöllum góðum mat.
Ofnbakað grænmeti
Hægt er að nota hvaða grænmeti sem er í þennan rétt en þessi blanda er ansi girnileg og góð bæði ein og sér, með kjöti eða fiski. Fyrir 4-6.
Pasta með smjörbaunum og pestó!
Pasta með Smjörbaunum og Pestó = PSP = Play Station Portable
Ratatouille
Gott sem aðalréttur með nýju brauði eða sem meðlæti með öðrum réttum, sérstaklega lambakjöti
Steiktir tómatar
Meðlæti fyrir 8. Tómatarnir eru góðir bæði heitir og kaldir.
Tabbouleh
Ferskur og léttur Marokkóskur réttur.
Þarasnakk
Ertu á leið í hreina ómengaða fjöru og þú og kemur auga á þara í sjávarmálinu, heillegan hreinan og lítið ásætin. Taktu þá með þér fallega búta heim og skerðu þá í smá strimla veltu þeim úr hveiti og e.t.v. sesamfræjum og djúpsteiktu þá síðan.
Mjög vilsælt sem snakk með bjór eða eintómir.
Til baka
|
|
 |
 |
29.05.2012
30.05.2012
|
 |
 |
|
Verksmiðjuframleiddar tómatsósur (ketchup) sem seldar eru á flöskum eru í rauninni súrsætar sósur þar sem þær innihalda bæði sykur og edik auk krydds og tómata. Þær eru hitaeiningaríkar, enda er sykur oft fjórðungur eða meira af innihaldi þeirra. |
 |
|