Uppskriftir > Brauð > Naan brauð

Lýsing:

Þetta naan brauð er það sem fullkomnar hina ekta indverksu máltíð.


Innihald:

200 ml mjólk
2 msk. sykur
1 pk þurrger
550 g hveiti
1 dl hörfræ
1 tsk salt
2 tsk lyftiduft
4 msk ólífuolía
1 dós hreint jógúrt
Gharam masala krydd
Maldon salt, fínt mulið

Til penslunar:
Ólífuolía
Fínt saxaður hvítlaukur
Ferskt kóriander


Aðferð:

Velgið mjólkina og leysið gerið upp í henni. Blandið hráefnunum öllum vel saman. Geymið samt hluta af hveitinu. Hnoðið deigið, skiptið deiginu í litlar kúlur og fletjið út í þunnar kökur ca 1,5 cm þykkar. Látið hefast undir stykki í 10 mínútur. Veltið hverri köku upp úr gharam masala kryddi. Bakið á útigrilli, pönnu eða í ofni undir grilli þar til brauðið er vel brúnt. Snúið kökunum og bakið eins á hinni hliðinni.
Penslið með olíublöndunni meðan brauðið er heitt og stráið maldon salti yfir.
Þessi brauð eru best nýbökuð en hægt er að
frysta þau og hita upp aftur.

Til baka
Hvítt súkkulaði er vara sem er framleidd úr kakósmjöri, mjólk eða mjólkurvörum og sykri og inniheldur a.m.k. 20% kakósmjör og mjólkurþurrefni samtals a.m.k. 14%, fengin með þykkingu eða þurrkun á nýmjólk, léttmjólk, undanrennu, rjóma, smjöri eða mjólkurfitu.