|
Baunasalat
Flott baunasalat á matseðlinum með súpunni og brauðinu eða á SALATDEGINUM!
Blaðsalat með ostateningum og hráskinku
Þetta er frábært salat sem hentar vel við betri tækifæri þar sem hráskinkan er sannkallað lúxushráefni. Fyrir 2.
Byggsalat með sinnepssósu
Hollt og gott salat úr íslensku byggi
Feneyjasalat
Matarmikið, volgt salat. Hentar sem léttur kvöldverður eða í saumaklúbbinn. Fljótlegt (u.þ.b. 25 mínútur). Nóg í máltíð fyrir 4.
Gerðu þér mat úr salati!
Það er oft leiðingjarnt að borða íssalat eða kínakál með tómötum og gúrku dag eftir dag. Salöt geta hins vegar hæglega verið herramannsmatur og geta meira að segja staðið vel ein og sér sem góð máltíð ef aðeins er hugað að hráefninu.
Mikilvægast er einfaldlega að gefa hugmyndafluginu lausan tauminn, tína til afgangana, gera spennandi innkaup og síðast en ekki síst prófa sig áfram og gera eitthvað nýtt!
Kjúklingasalat í tandoori með mangó
Indverskt salat
Kúskús- salat að hætti jamie Oliver
Þetta er frísklegt og gott kúskús salat sem passar eitt sér með góðu brauði eða sem meðlæti með kjöti eða fiski
Uppskriftin miðast við 4 sem sér réttur
Lárperusalat með rækjum
Ferskt salat sem hentar vel sem forréttur eða sem létt máltíð með góðu brauði. Fyrir 4.
Mexikóskt salat - Pico De Gallo
Þetta er bragðmikið (ekki svo sterkt) salat, með avocado, tómötum og líme, sem passar mjög vel með grilluðu kjöti
Salat 201 Ítalía
Ótrúlega gott salat sem hefur notið mikilla vinsælda á "Hvað er í matinn?" námskeiðunum hjá okkur.
Hentar mjög vel sem góður forréttur eða bara sem hin besta máltíð.
Salat frá Afríku með kjúklingabaunum, eggaldini og kóríander
Frábært salat með grilluðu eggaldin.
Salat frá Provance í Frakklandi
Matarmikið salat með fullt af spennandi hráefnum.
Spínat-, appelsínu og mangó salat
Ég fékk þetta salat með grillkjöti í útilegu um helgina og skyggði það algjörlega á grillkjötið, sem er ekki skrítið þegar maður er búinn að borða yfir sig af grillmat í sumar. Ég held að einfaldara og fljótlegra salat sé varla til. Allavega ekki miðað við hollustu og þá frábæru veislu sem það er fyrir bragðlaukana.
Frábærlega ferskt og svalandi með grillkjötinu, ja eða bara hverju sem er.
Til baka
|
|
 |
 |
29.05.2012
30.05.2012
|
 |
 |
|
Mysuostur er ævaforn að uppruna og var gerður um öll Norðurlönd hér áður. Mysuostur er gerður úr ostamysu. Brúni liturinn á ostinum verður til þegar mjólkursykurinn brúnast og karamelliserast. |
 |
|