Hreinlætiseftirlit

Hreinlætiseftirlit

Til þess að ganga úr skugga um hvernig til hefur tekist með þrif í matvælafyrirtækjum er nauðsynlegt að hafa einhvers konar hreinlætiseftirlit. Oft er það verkstjóri eða annar starfsmaður fyrirtækisins sem sér um þennan þátt, en einnig hefur það gefið mjög góða raun að kaupa þjónustuna annars staðar frá.

Rannsóknarþjónustan Sýni ehf. hefur um margra ára skeið boðið upp á þessa þjónustu og er með mörg fyrirtæki í föstum viðskiptum.

Við hreinlætiseftirlitið er jöfnum höndum notað sjónmat, sýnataka með Rodac skálum, ATP mælingar, stroksýni og loftsýni. Að lokinni sýnatöku er veitt ráðgjöf um úrbætur

Mysuostur er ævaforn að uppruna og var gerður um öll Norðurlönd hér áður. Mysuostur er gerður úr ostamysu. Brúni liturinn á ostinum verður til þegar mjólkursykurinn brúnast og karamelliserast.