Fiskvinnslur - verkstjórar og aðrir stjórnendur
Rétt meðhöndlun matvæla, hreinlæti, þjálfun starfsmanna og sýnatökur með sérstaka áherslu á fisk og fiskafurðir ætlað verkstjórum og öðrum stjórnendum fiskvinnslufyrirtækja.
Helstu áherslur á námskeiðinu:
• Helstu lög og reglugerðir sem gilda um framleiðslu á sjávarafurðum.
• Örverufræði. Hegðun og útbreiðsla örvera – matarsjúkdómar, skemmdarörverur. Hvaða þættir hafa áhrif á örveruvöxt?
• Aðskotaefni og sníkjudýr í íslensku sjávarfangi.
• Gæðamál s.s. fyrirbyggjandi aðgerðir, eftirlit, hitastigsmælingar, skráningar, skynmat og geymsluþol matvæla.
• Rétt meðhöndlun matvæla, umbúða, áhalda og kara til að auka öryggi, gæði og minnka rýrnun. Hvernig er hægt að hindra að örverur berist í matvæli?
• Krossmengun hvað er það? Hvað getum við gert? Farið m.a. yfir mikilvægi aðskilnaðar á milli hreinna og óhreinna svæða og meðhöndlunar á úrgangi og afurða.
• Persónulegt hreinlæti, umgengni og skipulag. Vellíðan og öryggi á vinnusvæðinu.
• Þrif og sótthreinsun, tilgangur, árangur og þrifaeftirlit.
• Þjálfun starfsmanna.
• Gæði, traust og samvinna.
Lögð er áhersla á að aðlaga námskeiðið að þörfum viðkomandi fyrirtækis og að starfsmenn séu virkir þátttakendur í námskeiðinu.
Rannsóknarþjónustan sýni ehf hefur gert samstarfsamning við Starfsafl fræðslusjóð um að sjóðurinn styrki þau námskeið sem fyrirtækið býður upp á.
Nánari upplýsingar: matvaelaskolinn@syni.is
|