Fyrirtækið
Rannsóknarþjónustan Sýni ehf. býður upp á ráðgjöf og þjónustu við matvælafyrirtæki og fóðurframleiðendur. Boðið er upp á á örverumælingar, t.d. vegna mats á ferskleika, efnagreiningar vegna krafna um næringargildismerkingar, aðstoð við uppsetningu og viðhald innra eftirlits, hreinlætiseftirlit og ýmis konar fræðslu og námskeið fyrir starfsfólk í matvæla- og fóðuriðnaði.
Rannsóknarþjónustan Sýni ehf. starfrækir einu einkareknu prófunarstofuna á þessu sviði sem fengið hefur faggildingu skv. IST EN ISO/IEC 17025 staðlinum fyrir algengustu efna- og örveruprófanir.
|