|
14.05.2009
Heimagert, hollt og hagkvæmt - Námskeið
Matreiðslunámskeið fyrir alla sem vilja læra að elda hollan og spennandi mat fyrir alla fjölskylduna
Við notum hráefni eins og kjúkling, fisk og kjöt sem við drýgjum með baunum, linsum, grænmeti af öllu tagi, grófum kolvetnum og spennandi kryddum og kryddjurtum.
Meðal rétta sem eldaðir verða á námskeiðinu:
- Flottar súpur úr maukuðu grænmeti og meiriháttar kryddum
- Skyndibitar eins og pizzur og fajitas - jammí
- Ilmandi karríréttir – fiskur, kjúklingur, grænmeti, baunir, hnetur, linsur.... og svo lærum við að baka naanbrauð með.
- Kjötbollur með ítalskri tómat-basil sósu
Tími námskeiðs: 26. maí Kl: 17:00-20:00
Skráning: í síma 512-3383 eða í namskeid@syni.is
Staður: Rannsóknarþjónustan Sýni Lynghálsi 3, 110 Reykjavík
Verð: 9.000 (veittur er 20% fjölskylduafsláttur)
Til baka
|