02.04.2009

Minnum á námskeiðin okkar fyrir fiskvinnslur

Annað námskeiðið er ætlað almennum starfsmönnum  fiksvinnslufyrirtækja (sjá fylgiskrá) en hitt er ætlað verkstjórum og öðrum stjórnendum í fiskvinnslufyrirtækjum (sjá fylgiskrá).

Þessi námskeið hefur Rannsóknarþjónustan verið að bjóða uppá í fjölda ára og um land allt og byggjum við því á mjög góðri og áralangri reynslu. Umsagnir um námskeiðin má lesa hér.

Námskeiðin hafa verið uppfærð reglulega og aðlöguð eftir óskum viðskiptavina okkar. Lögð er áhersla á að allir starfsmenn séu virkir þátttakendur í námskeiðinu.

Við minnum á að Sýni hefur gert samstarfsamning við Landsmennt og Starfsafl fræðslusjóði um að sjóðirnir styrki þau námskeið sem fyrirtækið býður upp á.

 



Fylgiskrár:
Hreinlæti fiskur- almennt
Hreinlæti fiskur - stjórnendur



Til baka

Verksmiðjuframleiddar tómatsósur (ketchup) sem seldar eru á flöskum eru í rauninni súrsætar sósur þar sem þær innihalda bæði sykur og edik auk krydds og tómata. Þær eru hitaeiningaríkar, enda er sykur oft fjórðungur eða meira af innihaldi þeirra.