28.11.2011

HACCP námskeiði á Ísafirði lokið

Haldið var 2ja daga HACCP - Gæði og öryggi alla leið- námskeið fyrir starfsfólk úr fiskvinnslugeiranum á Ísafirði nú í síðustu viku. Námskeiðið var haldið hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða á vegum Matvælaskólans hjá Sýni. Guðrún Elísabet hélt námskeiðið og voru þátttakendur um 20 talsins sem verður að teljast mjög góð þátttaka. Námskeiðið heppnaðist að vonum mjög vel og voru þátttakendur afar áhugasamir og tóku virkan þátt í námskeiðinu. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur skilji grundvallaratriði HACCP gæðakerfisins og geti innleitt það í sínum fyrirtækjum.



Til baka

Anísfræ, sem eru stundum kölluð sætt kummin, hafa lengi verið höfð til að bragðbæta mat. Þetta eru fræ af einærri, ilmríkri plöntu (Pimpinella anisum) sem vex í Grikklandi og Egiftalandi og er skyld kummini, dilli og fenniku. Hebrear og Grikkir notuðu fræin og Rómverjar borðuðu oft anískökur eftir mat til að bæta meltinguna.