10.11.2011

Vel heppnað hópeflisnámskeið

Síðastliðið föstudagskvöld kom til okkar í Matvælaskólann hópur starfsfólks frá fyrirtækinu Héðni hf í Hafnarfirði. Þau komu hingað í algjörri óvissu enda var þetta liður í óvissuferð og hópefli starfsfólksins hjá tækniþjónustudeild fyrirtækisins. Hópurinn var semsagt hingað kominn á matreiðslunámskeið sem kallast "Bland í poka".

Í hópnum voru 14 karlmenn og 3 konur og voru flestir vissir um að leiðin lægi í keilu eins og vinsælt er í svona ferðum og má því segja að þetta hafi komið þeim skemmtilega á óvart. Góð stemning var í hópnum og myndaðist mikil metnaður hjá fólki að standa sig sem best við eldamennskuna.

Myndaðir voru 6 hópar sem hver um sig fékk ákveðinn rétt til að elda en hver réttur var með tilteknu þema, t.d. ítalskt, indverskt og mexíkóskt. Skipað var í skreytinganefnd og sá hún um að leggja á borð og skreyta í salnum á meðan réttirnir fengu að malla í ofninum. Síðan voru réttirnir bornir fram og hópurinn átti notalega kvöldstund saman

Þetta hafði hún Rósa sem skipulagði óvissuferðina að segja um námskeiðið.

"Þetta var virkilega skemmtilegt og ég held að allir í hópnum hafi skemmt sér mjög vel. Þar sem þetta var óvissuferð þá var ég ekki viss um að það yrðu allir ánægðir með þetta, en þegar við vorum komin og allir voru búnir að átti sig á því hvað við værum að fara að gera, þá virkuðu allir mjög sáttir. Gat ekki betur séð en að allir skemmta sér mjög vel við að elda saman. Þetta var ekki eitthvað sem hópurinn bjóst við, en var skemmtilega öðruvísi. Þetta virkaði að mínu mat vel sem hópefli, allir unnu mjög vel saman. Maður sá nýjar hliðar á vinnufélögunum og kynntist betur þeim sem maður vinnur sjaldan með og þeim sem eru "nýrri" í deildinni. Mér fannst einnig alveg frábært að þurfa ekki að vaska upp og ganga frá eftir matinn, þið fáið stóran plús þar frá mér"



Til baka

www.matarkarfan.is er vefsíða sem auðveldar neytendum að nálgast tilboð í matvöruverslunum með því að kynna og lesa sér til á aðgengilegan og fljótlegan hátt nýjustu matvöruverðstilboðin á einungis einni vefsíðu.