|
18.08.2010
Krakkarnir skemmtu sér vel á matreiðslunámskeiði fyrir hressa krakka.
Nú er lokið matreiðslunámskeiði fyrir hressa krakka á aldinum 7 -14 ára hjá Sýni.
Krakkarnir elduðu saman ýmsa gómsæta rétti sem þau borðuðu síðan áður en þau fóru heim.
Þar fengu svo sannarlega allir að njóta sín í eldhúsinu og var oft mikið fjör og gaman hjá þeim.
Einnig fengu þau smá fróðleik um mat, hollustu og hreinlæti.
Matseðillinn var fjölbreyttur þar sem hollusta og fjölbreytni var höfð að leiðarljósi. Krakkarnir voru sammála um að maturinn hefði verið mjög góður. Leiðbeinandi á námskeiðinu var Guðrún Adolfsdóttir.
Myndir
Smellið á myndirnar til að sjá þær stækkaðar.
Til baka
|