12.08.2010

Skólamatur heimsækir Rannsóknarþjónustuna Sýni

Starfsfólk frá Skólamat kom í heimsókn til okkar og eldaði hjá okkur gómsætan mat og fékk jafnframt fræðslu um matargerð og samsetningu máltiða. Smá umsögn frá Fanneyju Sigríði Axelsdóttur aðstoðarframkvæmdarstjóra: "Starfsfólk Skólamatar ehf. fór á frábært námskeið hjá Guðrúnu Adolfsdóttur (Rannsóknarstofan Sýni ehf.) nú í ágúst þar sem eldaðir voru nokkrir heilsusamlegir og góðir réttir. Námskeiðið var einstaklega faglegt en á sama tíma persónulegt og skemmtilegt. Við mælum eindregið með námskeiðum Sýnis. "



Til baka

Speldi er forn hveititegund, töluvert ólík venjulegu hveiti, en með svipað næringargildi. Speldi er mun harðgerðara en venjulegt hveiti og orðið nokkuð vinsælt í brauðgerð. Speldi inniheldur glúten eins og hveiti en þó virðist fólk sem haldið er glútenóþoli þola betur að borða speldi en venjulegt hveiti.