04.08.2010

Ennþá nokkur laus pláss á matreiðslunámskeið fyrir hressa krakka á aldrinum 7-14 ára vikuna 9. - 13. ágúst.

Matreiðslunámskeið fyrir hressa krakka á aldrinum 7-14 ára í næstu viku 9. - 13. ágúst.
MATREIÐSLUNÁMSKEIÐ FYRIR HRESSA KRAKKA Á ALDRINUM 7-14 ÁRA Í SUMAR HALDIÐ HJÁ MATVÆLASKÓLANUM SÝNI LYNGHÁLSI 3 1. skipti: Lærum að skera niður litríkt grænmeti, baka kjöt og búa til yndislega íslenska kjötsúpu 2. skipti: Viltu læra að búa til FAJITAS? Við notum mexíkóskar pönnukökur kjúkling, grænmeti og heimagerðar sósur (salsasósu og guacamole) 3. skipti: Einfaldasti og besti núðluréttur í heimi. 4. skipti: Spaghettí bolognes að ítölskum hætti - hvítlauksbrauð 5. skipti: PIZZAVEISLA og smoothie í eftirrétt Markmið námskeiðsins: Að krakkarnir læri að þekkja og nota ýmis hráefni krydd og áhöld sem notuð eru í matargerð. Ennfremur að þau læri að elda hollan, spennandi og bragðgóðan mat fyrir alla fjölskylduna....og síðast og ekki síst að hafa GAMAN. Námskeið : 9.- 13. ágúst kl: 8-12 (5 skipti) Verð: 22.500 kr. Skráning: í síma 512-3389 eða í namskeid@syni.is Staður: Matvælaskólinn hjá Sýni Lynghálsi 3, 110 Reykjavík Komdu og vertu með á skemmtilegu og fræðandi námskeiði! Sjá einnig á www.itr.is undir “sumar 2010”



Til baka

Kardimomma eru bragðmikil og ilmrík, óþroskuð fræ kardimommurunnans (Elettaria cardamomum) sem notuð eru sem krydd.