|
24.06.2010
Matreiðslunámskeið fyrir hressa krakka þar sem allir skemmtu sér vel.
Nú er fyrsta matreiðslunámskeiðið fyrir hressa krakka að ljúka.
Krakkkarnir elduðuð saman gómsæta rétti úr fjölbreyttu hráefni allt frá íslenskri kjötsúpu til spaghettí. Hollusta og næring var höfð að leiðarljósi. Einnig var fræðst smá um mat hreinlæti og hráefni. Krakkarnir fóru í óvissuferð í Vífilfell þar sem allir fengu bakpoka og kók .
Allir voru sammála um að maturinn væri góður og allir voru glaðir.
Markmið námskeiðisins er að krakkarnir læri að þekkja og nota ýmis hráefni krydd og áhöld sem notuð eru í matargerð. Ennfremur að þau læri að elda hollan og bragðgóðan mat fyrir alla fjölskylduna og síðast og ekki síst að hafa gaman af. Námskeiðinu lýkur með Pissuveislu sem allir bíða spenntir eftir. Leiðbeinendur á námskeiðinu voru þær Guðrún Adolfsdóttir og Margrét Sigurðardóttir sem skemmtu sér ekki síður vel en börnin. Næsta námskeið verður 9-13. ágúst.
Myndir
Smellið á myndirnar til að sjá þær stækkaðar.
Til baka
|