09.06.2010

Rannsóknarþjónustan Sýni í 2. sæti í flokki starfsmanna 10-29 í hjólað í vinnuna.

Rannsóknarþjónustan Sýni hafnaði í 2. sæti í flokki 10-29 starfsmenn. Allir eru sammála að það hafi verið bæði gaman og hollt að taka þátt í Keppninni " Hjólað í vinnuna " Við óskum tannlæknastofunum í Þórunnarstræti til hamingju með sigurinn og öllum öðrum sem tóku þátt, þar sem okkur finnst allir sigurvegarar sem tóku þátt. Hlökkum til að mæta galvösk að ári liðnu.



Til baka

Anísfræ, sem eru stundum kölluð sætt kummin, hafa lengi verið höfð til að bragðbæta mat. Þetta eru fræ af einærri, ilmríkri plöntu (Pimpinella anisum) sem vex í Grikklandi og Egiftalandi og er skyld kummini, dilli og fenniku. Hebrear og Grikkir notuðu fræin og Rómverjar borðuðu oft anískökur eftir mat til að bæta meltinguna.