|
16.09.2010
Tengslanet starfsfólks í mötuneytum
Matvælaskólinn hjá Sýni stofnar tengslanet fyrir starfsfólk í mötuneytum. Stefnt er að því að hópurinn hittist í fyrsta skipti klukkan 14:00 þann 16. september nk.
Staðsetning: Matvælaskólinn hjá Sýni
Námskeiðislýsing
Tengslanet starfsfólks í mötuneytum
Matvælaskólinn hjá Sýni ætlar að halda utan um samstarfsvettvang starfsfólks í litlum og stórum mötuneytum. Tilgangurinn er að starfsfólkið geti komið saman, miðlað af reynslu og þekkingu, fengið ábendingar varðandi innkaup, matseðla, uppskriftir og námskeið í boði. Fundirnir byrja með stuttum fræðslufyrirlestrum um mismunandi efni en síðan verða umræður og skipst á reynslu, upplýsingum og uppskriftum. Miðað er við að hópurinn hittist 4 sinnum fram að vori.
Fyrsta skipti: 16. september kl. 14-16
Baunir og gróf kolvetni í mat – leiðir til að drýgja og minnka kostnað
Umræður og upplýsingamiðlun
Annað skipti: 25. nóvember kl. 14-16
Ofnæmi og óþol
Umræður og upplýsingarmiðlun
Þriðja skipti: Tímasetning ákveðin síðar
Krydd og kryddjurtir, ræktun og notkun
Umræður og upplýsingarmiðlun
Fjórða skipti: Tímasetning ákveðin síðar
“Sumarmatseðlar”
Umræður og upplýsingamiðlun
Verð: 18.000,-kr
Til baka
|