|
19.01.2012
HACCP gæðakerfið - Námskeið á Dalvík
Námskeið fyrir alla þá sem meðhöndla matvæli á einn eða annan hátt.
Tími: 19. og 20. janúar 2012, kl:8:30-17:00 (ath! námskeiðin úti á landi eru tvo daga í stað þriggja)
Staður: Námsverið við Skíðabraut, Dalvík.
Verð: 49.000.-
Skráning: í síma 512-3391 eða í matvaelaskolinn@syni.is
Námskeiðislýsing
Efni námskeiðs:
1. Hluti (6klst.) Öryggi í gegnum alla “fæðukeðjuna”: Hvað gerum við til að tryggja öryggi og gæði varanna sem við erum að framleiða? Hvaða þættir geta haft áhrif á öryggi matvæla? Lög og reglugerðir – hverjar eru kröfurnar? Staðlar – stutt kynning á ISO-22000 staðlinum. Gæðastefna og markmiðasetning. Góðir framleiðsluhættir - Fyrirbyggjandi aðgerðir s.s. þjálfun starfsmanna, kvörðun mælitækja. Hættur (hættur) – skilgreining og dæmi. Örverur - stutt fræðsla.
2. Hluti (6 klst.) Hvað er HACCP? Hvernig setjum við upp HACCP-kerfi: Undirbúningur – teikningar – skipting vinnslusvæðis í “hrein” og “óhrein” svæði. Vörulýsingar – matseðlar. Áhættugreining – hvernig vinnum við áhættugreiningu – áhættugreining fyrir mismunandi vinnslur. Sýnatökur – eftirlit. Vikmörk - frávik. Úrbætur – úrbótaáætlun. Rekjanleiki – hvernig tryggjum við rekjanleika?
3. Hluti (6 klst.) Unnið með eigin gæðakerfi miðað við hvar hver og einn er staddur. Innri úttekt – á eigin verklagsreglum – gerð gátlista – frávik og úrbætur. Endurskoðun á eigin gæðakerfi - Gerð verkefnalista. Áhættugreining úr eigin fyrirtæki endurskoðuð eða útbúin eftir því sem við á. Gæðahandbókin – Yfirlit. Samantekt – stutt könnun á skilningi.
Þátttakendur komi með grunnteikningar af eigin vinnslu og gæðakerfi annað hvort útprentuð eða á tölvutæku formi.
Komdu og vertu með á skemmtilegu og fræðandi námskeiði
Munið eftir styrkjunum úr fræðslusjóðum verkalýðsfélaganna!!
Nánari upplýsingar: matvaelaskolinn@syni.is
Til baka
|