08.02.2012

Krakkamatur


Námskeið fyrir matráða í leik- og grunnskólum.


Tími: 08. og 15. febrúar 2012,  kl. 14-17
Staður: Matvælaskólinn hjá Sýni, Lynghálsi 3
Verð: 23.500


Námskeiðislýsing


6 tíma matreiðslunámskeið fyrir starfsfólk mötuneyta og þá sem starfa í eldhúsum.





Efni námskeiðs:


Dagur 1: Fróðleikur um ýmis hráefni og krydd sem hægt er að nota í mat fyrir krakka (og fullorðna) Súpur og sósur eldaðar. Súpur og sósur smakkaðar og dæmdar.


Dagur 2: Smá fróðleikur um gerð og fjölbreytni í salötum Fiskréttir og kjötréttir eldaðir Borðað og rætt um réttina


Dæmi um rétti sem búnir verða til í verklega hlutanum: Kjötréttir eins og: Pasta bolognes, Lasagna, Mexíkósk grýta, Sveitabaka með gulu þaki, Kássa eins og börnin í Norður afríku borða Fiskréttir eins og: Pizzafiskur, Hrísgrjónkarrí fiskur, Fiskur í salsasósu Súpur eins og: Rótargrænmetissúpa, Karrí appelsínusúpa með kjúklingi, Minestrone frá Ítalíu Kaldar sósur og salöt.


Nánari upplýsingar: matvaelaskolinn@syni.is

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Adolfsdóttir

Til baka

Anísfræ, sem eru stundum kölluð sætt kummin, hafa lengi verið höfð til að bragðbæta mat. Þetta eru fræ af einærri, ilmríkri plöntu (Pimpinella anisum) sem vex í Grikklandi og Egiftalandi og er skyld kummini, dilli og fenniku. Hebrear og Grikkir notuðu fræin og Rómverjar borðuðu oft anískökur eftir mat til að bæta meltinguna.