22.02.2012

Bland í poka


Tími: Miðvikudaginn 22. febrúar 2012 kl 17:00-20:00


Staður: Matvælaskólinn hjá Sýni Lynghálsi 3, 110 Reykjavík.


Verð: 12.000


Skráning: í síma 512-3380 eða í matvaelaskolinn@syni.is



Námskeiðislýsing

Stutt og skemmtilegt matreiðslunámskeið fyrir þá sem langar í nýjar hugmyndir fyrir mötuneytið sitt.

Stuttur fyrirlestur um notkun á spennandi kolvetnum (t.d. ýmsar tegundir núðla, quinoa o.fl) og kryddum og kryddjurtum. Síðan matreiðum við, fyllum hlaðborðið með kræsingum og njótum.

* Matseðill námskeiðsins *

Frittata með grænum steinseljuhjúp

Kardimommukjúklingur

Fylltir bakaðir tómatar og paprikur

Ítalskt salat með hráskinku, mozarella og heitri balsamic dressingu

Núðlusalat með kjúklingi og austurlenskri dressingu

Salat með nautastrimlum og sesamdressingu

Tagliatelle með djúpsteiktu zuccini og parmesandressingu

Gazpacho – köld súpa

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Adolfsdóttir

Til baka

Kardimomma eru bragðmikil og ilmrík, óþroskuð fræ kardimommurunnans (Elettaria cardamomum) sem notuð eru sem krydd.